Kính lúp
Trình tải tìm kiếm

James Patterson & Liza Marklund 
Póstkortamorðin 

Ủng hộ
Hvað gerist þegar fríið breytist í martröð og morðingi lætur ekkert stöðva sig – ekki einu sinni landamæri? Rannsóknarlögreglumaðurinn Jacob Kanon einsetur sér að komast að því.
Á ferðalagi í Róm er ungt bandarískt par myrt. En þau eru ekki þau einu – ung pör finnast myrt í fleiri borgum Evrópu og öll eiga morðin það sameiginlegt að dagblöðum á staðnum eru send póstkort áður en morðin eru framin.
Jacob Kanon er rannsóknarlögreglumaður í New York og faðir eins fórnarlambsins. Hann er staðráðinn í að ráða gátuna og koma höndum yfir morðingja dóttur sinnar, en allt kemur fyrir ekki. Þegar sænska blaðakonan Dessie Larsson fær enn eitt póstkortið sem virðist spá fyrir um morð, í Stokkhólmi í þetta sinn, taka þau höndum saman og komast fljótt á slóðir morðingjans.
Þegar bókin kom út fór hún beint á topp sænska metsölubókalistans. Hún tróndi einnig á toppnum á metsölulista New York Times, sem er aðeins í annað sinn sem verk sænsks höfundar lendir þar.
€6.99
phương thức thanh toán

Giới thiệu về tác giả

James Patterson er bandarískur metsöluhöfundur fæddur árið 1947. Bækur hans hafa selst í hundruðum milljóna eintaka. Patterson hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir skrif sín og hafa bækur hans verið þýddar á fjölmörg tungumál. Patterson kýs að gefa aftur til samfélagsins með því að styrkja verkefni sem efla læsi í skólum víða um Bandaríkin.
Liza Marklund (1962) er sænskur metsölubókahöfundur. Hún er þekktust fyrir bækur sínar um rannsóknarblaðakonuna Anniku Bengtzon, en sjálf hefur Liza starfað sem rannsóknarblaðakona.
Ngôn ngữ tiếng Iceland ● định dạng EPUB ● Trang 317 ● ISBN 9788728541968 ● Kích thước tập tin 0.6 MB ● Phiên dịch Guðni Kolbeinsson ● Nhà xuất bản SAGA Egmont ● Thành phố Copenhagen ● Quốc gia DK ● Được phát hành 2024 ● Có thể tải xuống 24 tháng ● Tiền tệ EUR ● TÔI 9350648 ● Sao chép bảo vệ DRM xã hội

Thêm sách điện tử từ cùng một tác giả / Biên tập viên

697.873 Ebooks trong thể loại này