عدسة مكبرة
بحث محمل

Sir Walter Scott 
Ívar hlújárn 

الدعم
Ívar hlújárn er söguleg skáldsaga sem gerist á 12. öld á Englandi þegar enska þjóðin lýtur valdi Normanna. Hinn elskaði þjóðhöfðingi, Ríkharður ljónshjarta hefur verið handtekinn á heimleið sinni úr krossför. Svikuli bróðir hans, Jóhann prins, hyggst nýta tækifærið til að leggja undir sig landið og taka við konungsvaldinu. Þvert gegn vilja föður síns leggur riddarinn Ívar hlújárn upp í háskaför til að frelsa Ríkharð konung og freistast um leið til að fylgja forboðinni ást sinni á lafði Róvenu. Hér flétta rómantík og hetjudáðir ævintýralegan söguþráð sem endurspeglar menningu og tíðaranda miðalda. –
€8.99
طرق الدفع

عن المؤلف

Walter Scott (1771-1832) var skoskt sagna-, ljóða- og leikritaskáld. Sem rithöfundur var hann einna þekktastur fyrir að gefa lesendum færi á að upplifa raunsanna atburði í gegnum líflegar sögupersónur enda frumkvöðull í ritun sögulegra skáldsagna. Hið sígilda ævintýri um Ívar hlújárn er meðal þekktustu verka hans en árið 1952 gerði leikstjórinn Richard Thorpe kvikmynd eftir sögunni þar sem Robert Taylor, Joan Fontaine og Elizabeth Taylor fóru með aðalhlutverkin. Kvikmyndin var tilnefnd til þriggja óskarsverðlauna.
لغة أيسلندي ● شكل EPUB ● صفحات 210 ● ISBN 9788728449134 ● حجم الملف 0.4 MB ● مترجم Þorsteinn Gíslason ● الناشر SAGA Egmont ● مدينة Copenhagen ● بلد DK ● نشرت 2023 ● للتحميل 24 الشهور ● دقة EUR ● هوية شخصية 8765748 ● حماية النسخ DRM الاجتماعية

المزيد من الكتب الإلكترونية من نفس المؤلف (المؤلفين) / محرر

41٬294 كتب إلكترونية في هذه الفئة