Vergrootglas
Zoek lader

James Patterson 
Fyrstur til að deyja 

Ondersteuning
Líf Lindsay Boxer, yfirvarðstjóra á morðdeildinni í San Francisco, tekur óvænta stefnu einn mánudagsmorgunn þegar hún fær erfiðar fréttir frá lækninum. Áður en hún nær að meðtaka tíðindin að fullu er hún boðuð á Grand Hyatt hótelið þar sem ung hjón hafa verið myrt með hrottalegum hætti á brúðkaupsnóttina. Við tekur eitt vandasamasta mál ferilsins sem kemur Lindsay í kynni við fréttkonuna Cindy Thomas, yfirréttarlækninn Claire Washburn og yfirréttardómarann Jill Bernhardt sem sameina krafta sína í von um að leysa gátuna.Fyrsta saga bókaseríunnar um Kvennamorðklúbbinn kom út árið 2001 en serían samanstendur af alls 23 bókum sem hafa verið þýddar á fjölda tungumála og notið vinsælda um allan heim. Kvennamorðklúbbinn skipa þær Lindsay Boxer, Cindy Thomas, Claire Washburn og Jill Bernhardt en saman leysa þær dularfull morðmál í heimabæ sínum, San Francisco.
€5.99
Betalingsmethoden

Over de auteur

James Patterson (1947) er bandarískur rithöfundur. Hann gaf út sína fyrstu skáldsögu árið 1976 og hefur skrifað hundruði bóka í kjölfarið. Þótt Patterson sé þekktastur fyrir spennu- og glæpasögur skrifar hann innan fjölbreyttra bókmenntagreina, bæði fyrir börn og fullorðna. Hann er mikilvæg rödd í bókmenningu í Bandaríkjunum og talar gjarnan fyrir mikilvægi lestrar- og skrifkunnáttu barna. Í gegnum árin hefur Patterson veitt skólum, bókasöfnum og sjálfstæðum bókabúðum rausnarlegan stuðning í þágu góðra málefna.
Taal IJslands ● Formaat EPUB ● Pagina’s 253 ● ISBN 9788728542064 ● Bestandsgrootte 0.7 MB ● Vertaler Harald G. Haraldsson ● Uitgeverij SAGA Egmont ● Stad Copenhagen ● Land DK ● Gepubliceerd 2023 ● Downloadbare 24 maanden ● Valuta EUR ● ID 8817391 ● Kopieerbeveiliging Sociale DRM

Meer e-boeken van dezelfde auteur (s) / Editor

42.463 E-boeken in deze categorie