Árið er 1866 og sjómenn um allan heim hræðast möguleg skrímsli neðansjávar. Af þeim sökum ákveða prófessorinn og líffræðingurinn, Dr. Pierre Aronnax, og aðstoðarmaður hans, Conseil, að leggja í sjóferð til að rannsaka málin. Skipstjórinn Nemo tekur þá til fanga á skipi sínu, kafbátnum Nautilus, þar sem þeir bera fegurð hafdjúpanna augum. Þessi heillandi ævintýraskáldsaga segir frá ævintýrum ferðalanganna er þeir ferðast um heiminn og takast á við meðfylgjandi hættur.Sæfarinn – Ferðin kring um hnöttin neðansjávar er talin móðir allra ævintýraskáldsagna. Ævintýri sögunnar, uppfinningarnar og uppgötvanirnar gerðu það að verkum að Verne var á undan sínum samtíma, sem gerir söguna einstaka og ógleymanlega.-
Giới thiệu về tác giả
Hinn franski Jules Verne (1828-1905) er einn dáðasti rithöfundur samtímans og oft nefndur sem faðir vísindaskáldskaparins. Var hann gríðalega afkastamikill bæði sem rithöfundur og ljóð- og leikskáld og er í dag mest þýddi rithöfundur allra tíma ásamt Agöthu Christie og William Shakespeare.
Ngôn ngữ tiếng Iceland ● định dạng EPUB ● Trang 150 ● ISBN 9788726286519 ● Kích thước tập tin 0.4 MB ● Nhà xuất bản SAGA Egmont ● Thành phố Copenhagen ● Quốc gia DK ● Được phát hành 2019 ● Có thể tải xuống 24 tháng ● Tiền tệ EUR ● TÔI 7295333 ● Sao chép bảo vệ DRM xã hội